Ábendingar um fyrirlesara á viðburðum foreldrafélaga
Mörg foreldrafélag halda ýmis fræðslukvöld yfir veturinn og/eða fá fyrirlesara til að vera með áhugavert erindi á aðalfundi.
SAMFOK berst af og til fyrirspurnir um skemmtilega fyrirlesara og höfum við tekið saman lista þeim fyrirlesurum sem við vitum um. Við tökum fagnandi á móti ábendingum um fleiri fyrirlesara.
Erindi bjóða upp á ýmsa fyrirlestra. Heimasíða: erindi.is
Hugarfrelsi býður upp á fyrirlestra um kvíða hjá börnum og unglingum. Heimasíða: hugarfrelsi.is
Kolbrún Þ. Pálsdóttir er með ýmsa fræðslu, m.a. um foreldrasamstarf. Heimasíða: uni.hi.is/kolbrunp
Lógík eru með fræðslu um upplýsingatækni. Heimasíða: logikeducation.wordpress.com
Páll Ólafsson fjallar um ýmislegt sem viðkemur börnum. Hann vinnur hjá Barnaverndarstofu: Heimasíða: bvs.is
Pædagogus býður upp á alls konar fyrirlestra um það að eiga ungling. Heimasíða: uppeldi.org
SAFT er með fjölbreytta fyrirlestra í sambandi við netið og nýmiðla. Heimasíða: saft.is
Sálstofan býður upp á ýmsa fyrirlestra fyrir foreldra. Heimasíða: salstofan.is
Sentia sálfræðistofa er með fyrirlestra um sjálfsmynd, kvíða og ADHD. Heimasíða: sentia.is
Út fyrir kassann. Bjarni Fritzson og Þóra Tómasdóttir fjalla m.s. um sjálfsmynd barna. Heimasíða: utfyrirkassann.is
Vanda Sigurgeirsdóttir. Fjallar um einelti, vináttu og fleira. Heimasíða: kvan.is
Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson fjallar um netfíkn. Heimasíða: tolvufikn.is